10.08.2006 16:55:39 / takthaus
TAKTHAUS.BLOGGAR.IS
Þá er ég búinn að flytja lögheimilið mitt á
http://takthaus.bloggar.is !! Hvet fólk að sjálfsögðu eindregið til
að kíkja þangað yfir, bookmark'a jafnvel og endilega smella tengli
á bloggið ykkar og láta mig vita svo ég geti endurgoldið greiðann
kveðjur
Þór
http://takthaus.bloggar.is !!
»
07.07.2006 22:33:49 / takthaus
Ohhhh, ég er að hlusta á Lausnina, fyrsta disk Hermigervils .... og
ég verð að segja að mörg lögin á honum eru NÆSTUM því geðveik ! Og
þar sem að þau eru svona næstum því geðveikt góð þá verð ég
pirraður þegar ég hlusta á hann !
»
01.07.2006 17:53:30 / takthaus
Og hver sagði að réttlætið sigraði að lokum ?
»
19.04.2006 15:54:35 / takthaus
Kominn heim, heim í heiðardalinn. Ég er kominn heim úr landi
túlípana, vindmylla og skurða. Land láglendis og ófríðra meyja,
kannabisefna og vændiskvenna. Ég er kominn heim, heim á landið
kalda. Húsið stóð autt þegar ég kom heim og ekkert tók á móti mér
annað en ógleði og kvef, uppköst og flensa. Home sweet home? Já,
svo sannarlega !!

þrátt fyrir allt!
Ljúft ha!
bless
»
08.04.2006 21:21:43 / takthaus
Já, ónot! Í gærkvöldið var
ég með einhverja ónotatilfinningu í maganum, svona eins og
eitthvað slæmt væri að fara að gerast og mér hreinlega leið
illa yfir því, það illa að ég átti erfitt með að festa
svefn.
Svo í dag var ég að keppa á móti Reyni Sandgerði með félögum mínum
úr Leikni. Leikinn unnum við 4 - 1 og tókst mér loksins að skora
mark í móti fyrir Leikni. Markið hinsvegar var einkar óverðskuldað.
Þannig er mál með vexti að Valur Markmaður sparkaði boltanum langt
út og aftasti varnarmaður missti hann yfir sig. Þar var ég mættur
og ætla að taka boltann niður, heppnaðist ekki betur en svo að ég
næstum því gaf á markmann andstæðinganna. Ég svo pressaði á hann
áður en hann náði boltanum sem olli því að hann náði ekki að festa
hendur á boltann heldur kastaðist hann af mér og yfir markmanninn
þannig að eftirleikurinn var auðveldur, potaði boltanum í autt
markið. Eins og ég segi, svo illa gert af minni hálfu að það var
klárlega óverðskuldað.
Undir lok hálfleiksins tekst mér að einhvernveginn flækja tána á
vinstri fætinum í gervigrasinu þegar ég er að snúa mér þannig að ég
svona dett svolítið ofan á snúinn ökklann. Við það heyrði ég háan
smell og nýstandi sársauka. Ég var klárlega ekki rólegur yfir þessu
og minntist þess hvernig Owen braut bein í sínum ökkla fyrr í
vetur. Ég held þó að þetta sé ekkert alvarlegt þar sem að ég er
ekki einu sinni haltur nema ef ég ætla í eitthvað tempo hlaup. Þar
sem ég er að fara til Hollands í fyrramálið, þá ætla ég að vona að
ónotatilfinningin hafi bara verið fyrirboði um væga ökklatognun en
ekki annað verra !!!!
later
Þór Villiköttur!
»
03.04.2006 13:19:39 / takthaus
Hvort er betri kostur, snoða mig fyrir hollandsferðina? .... eða
halda áfram að safna?
ég tel það ekki valkost að auka á skuldirnar.......
annars bendi ég bara á skoðanakönnunina
herra þór blankur!
kveður
»
01.04.2006 18:34:17 / takthaus
Shit maður, ég nenni ekkert að blogga lengur, hvað er eila málið
??
og ...
væri ekki geggjað töff að vera með agent ... hver vill vera
agentinn minn ??
»
23.03.2006 22:39:32 / takthaus
Hmm, titillinn segir eiginlega allt sem segja þarf !
En við allaveganna vorum að keppa við HK í kvöld og leikurinn
þróaðist útí einhvert alleiðinlegasta form knattspyrnu sem ég get
hugsað mér, en það er powerbolti. Stympingar, ýtingar og barningur
útum allan völl og alltaf nöldruðu og vældu HK menn yfir því að
maður var að nudda aðins í þá. Fyrir svo utan að þeir skoruðu
ólöglegasta mark íslandssögunnar beint úr aukaspyrnu sem þeir tóku
of snemma eftir að dómarinn hafi tilkynnt okkur að hann ætti að
bíða eftir flautunni. En hvað um það, hann dæmdi mark og staðan var
2-2 því varð ekki breytt. Slagsmálin héldu áfram og ef þetta hefði
verið íshokkí þá hefði ég mjög líklega lennti í 3 stykkjum
fistfight... leiðinlegt með eindæmum !
En hvað sem því líður þá var ég vægast sagt slakur á boltanum
þannig að ég á mikið verk fyrir höndum ennþá, en það er alltílæ því
ég er alveg tilbúinn til að halda áfram að leggja mikið á mig til
að ná framförum.
bless kex
þór
»
21.03.2006 15:18:27 / takthaus
Vill bara minna alla nær og fjær á að KR og Snæfell etja kappi í
vesturbænum í kvöld, allt undir og ekki við öðru að búast en
blóðugri orrustu!
Ég verð þar allaveganna
þannig að ...
verið hetjur og komið og styðjið við bakið á Finnsa félaga mínum og
hermönnunum hans svarthvítu !
pís !!
»
20.03.2006 12:02:54 / takthaus
Helgin mín var .... vakna 10:00 á föstudegi, vinna klukkan 13:00,
kappleikur eftir vinnu, eða klukkan 21:00, kominn heim rúmlega
23:32... vinna 10:45 laugardagsmorguninn, æfing beint eftir vinnu
eða klukkan 16:00 .... leikur aftur á sunnudaginn klukkan
16:30.....
Alveg búinn á því ! Samt gott, þannig séð sko ...
já, og ef það eru einhverjir myspace'arar á vappi hér, þá er ég
www.myspace.com/takthaus ..... vill meiraðsegja meina að ég sé
pioneer á þessu sviði hérna á íslandi og var hreint ekki sáttur við
að vera sleppt úr upptalningu DV á íslendingum á myspace .....
njeahh, djók
bless..
þór ...
»
14.03.2006 12:58:21 / takthaus
Reiðubúinn að fara að sofa því ég er tilbúinn til að vakna!!
»
11.03.2006 18:07:27 / takthaus
Ég var að fá mér kakó í fyrsta skipti í guð má vita hvað langan
tíma !! Mikið óskaplega er það gott ennþá.
Gamalt og klassískt bitbein kókómjólkurdrykkjumanna.. og kvenna ...
Duftið á undan mjólkinni eða eftir ?? Og Jafnvel, af hverju ?
Ég set duftið á eftir, mér finnst það blandast betur þannig !
seinna fólkz
Þór
»
09.03.2006 15:31:01 / takthaus
Andskotinn Andskotinn AAAANDSKOTINN sjálfur !! Vitiði hvað?! Ég, í
"ofurgreindar" kasti, ákvað að klofa yfir fartölvuna sem lá á
sófaborðinu fyrir framan mig og AUÐVITAÐ bombaði ég löppinni í hana
þannig að hún hrundi í gólfið með látum ! Þegar ég sá á skjáinn að
allt virtist í góðu lagi þá ákveð ég að vera geggjað fyndinn og set
á svið dramantískt leikrit fyrir Tinnu ,sem glotti útí annað við að
sjá örlög tölvunnar, og krýp yfir henni eins og hún væri látinn
blökkumannastrákur í einhverri blökkumannamynd og ég móðir hans
öskrandi "WHY!!?? WHYYYY!!?? OH MY GOD WHY!!???". Kem svo tölvunni
fyrir á borðinu aftur og þá verður skjárinn alltíeinu blár. Jújú,
ég hafði séð þetta gerast áður og var því ekkert neitt að panika of
mikið yfir þessu og restarta kvikindinu bara. Þá kom sprengjan
maður, "A Disk Cannot Be Found", eða eitthvað svoleiðis og
windowsið startast ekki en mér býðst að ýta á "Ctrl-Alt-Delete" til
að restarta aftur en það kveikir bara á nákvæmlega sama ferlinu.
S.s. talvan mín er skrúd !!
og ég ekki einu sinni búinn með afborganir
búhúhú
Þór
»
06.03.2006 20:35:13 / takthaus
Svona sitt lítið af hverju bara.
Sunderland, ó sunderland !! Liðið mitt í ensku er ekki bara búið
að skíta í brækurnar, ekki bara búið að maka skítnum upp bakið
heldur hreinlega synda þeir í skítnum þetta tímabilið. Mínir menn
hreinlega stefna hraðbyr í að slá eigið met í fæstum stigum á
tímabili í efstu deild í Englandi. 28 leikir og 10 stig !? Hvernig
má það vera? Ráku stjórann í dag og Kevin Ball tekinn við. Ég spyr,
með þennan mannskap og Kevin Ball sem stjóra... eru einhverjar
líkur á að þeir snúi taflinu við? Mick McCarthy alveg hörku stjóri
og náði að kreista út 10 stig í 28 leikjum, sem eru rétt um 1 stig
á hverja 3 leiki og Kevin Ball á að bjarga liðinu frá að slá eigið
met. Til þess þarf hann 9 stig úr 10 leikjum eða 3 stig úr hverjum
3 leikjum. Betri árangur með verri mannskap, sé það ekki gerast !
Þannig að ég segi bara Áfram allir nema Chelski !!
Óskarinn í gær, og ég lét Tinnu pakka mér í HvítRússneskan
gjafapappír. Hún vann mig með 9 réttum gegn 4 eða svo, allaveganna
með 5 stiga mun. Skelfilegt alveg hreint. Annars á ég enn eftir að
horfa á Capote svo að Philip Seymore Hoffmann á eftir að sína mér
að hann sé vel að sínum verðlaunum kominn, ekki það að ég sé að
efast... ég er bara ekki viss um að hann nái að selja mér þetta
Annars er það af mér að frétta að það er langt síðan ég hef verið
með svona mikið kvef. Ef að hor og viðbjóður væri þyngdar sinnar
virði í gulli, þá hugsa ég að ég væri ekki skuldugur maður mikið
lengur ! Annars biðst ég afsökunnar á þessum fremur ógeðfelldu og
óþörfu upplýsingum!!
Lag Dagsins er Changing Lanes með Chops ft. Kanye West sem er á
disknum Virtuosity sem kom út árið 2004 og þar sem að ég hef ekki
ráð á því að halda vefþjóninum mínum gangandi þá get ég ekki boðið
niðurhal á því lagi. Og nei, ég nenni ekki að stunda einhvern
yousendit.com eða sendspace.com bisness! Þetta lag er reyndar ekki
nema rétt tæpar 2 mínútur, but I don't curr, það er gott
þangað til að sólin rís á ný
Þór
»
02.03.2006 17:00:07 / takthaus
Guð minn góður, ég vissi ekki að þetta væri hægt !!!! Ég,
vísindamaðurinn sjálfur, ákvað að í fjarveru skyrsins væri sniðugt
að nota bara kotasælu sem prótíngjafann í hrærunni sem yfirleitt er
svo hrikalega góð og viti menn, ekki bara varð þessi hræra ekki
jafngóð og mín venjulega heldur varð hún hreinlega að versta drykk
sem ég hef nokkurntíman troðið innfyrir mínar varir !! Jesús
kristur... tók 3 sopa og gafst upp !
Tískusýning í Kringlunni klukkan 8, nóg að gera hjá kappanum, er
hvað á hverju að leggja af stað uppí kringlu í hár, förðun og máta
föt. Orkulaus eftir booztklúðrir mikla.. *snökt* !
Blessó í bili !
Þór
»
Síður:
1 2 3 ...
7